Gagnasafn

Leit

Eldhús 6 - 0 Salur

27. júní 2006 klukkan 07:23
Úrslit fótboltamótsins víðfræga eru nú ljós og var það eldhúsið sem hreppti sigurinn með heilum 6 mörkum gegn engu!!!

Leikið var 2 x 20mín. og skoraði eldhúsið 3 mörk í báðum hálfleikum. Reyndar vann salurinn aðra keppni á sama tíma, en það var klappstýrukeppnin Glottandi ...þvílík og önnur eins hróp og klöpp hafi ekki sést í langann tíma og voru þau hreint ótrúleg í samanburði við einbeittu og alvarlegu eldhúskeppendurna (reyndar vissi eldhúsið ekki af keppninni fyrr en eftir fótboltaleikinn...hehe)

Án þess að vera með það alveg á hreinu minnir mig að Hjalli og Vignir hafi sett í nokkur mörk og er ekki frá því að Jói G hafi skorað líka. Endilega þið sem munið megið rekja söguna hérna í kommenta kerfinu. Reyndar man ég að eitt af mörkunum hans Hjalla var dæmt af þar sem brotið hafði verið á sóknarmanni og dómarinn flautað til aukaspyrnu rétt áður en að Hjalli setti boltann í netið.

Nokkur meiðsl urði einnig á keppendum í leiknum, en flest þeirra stöfuðu aðallega af lélegri þjálfun og lítilli upphitun, þ.e. vöðvameiðsl ýmiskonar. Einnig "rákust" þau Svandís og Siggi harkalega saman undir lok seinni hálfleiks og þurfti að stöðva leikinn í smá stund. Svandís stóð sig samt eins og hetja og náði sér á strik þegar leið á.

Ekki má heldur gleyma að minnast á Kristján, en hann var dómari leiksins og stóð sig með stökustu prýði. Ágústa eiginkona hans stóð sig einnig eins og hetja og tók mest allan fótboltaleikinn upp á video.

En allavega, TIL HAMINGJU ELDHÚS MEÐ SIGURINN !!!

Myndbrotum og ljósmyndum verður svo dælt inn á síðuna innan skamms, svo fylgist vel með!
Argentína

Fótboltaćfingar

22. júní 2006 klukkan 07:28
Rétt í þessu voru að ljúka fótboltaæfingar hjá bæði eldhúsinu og salnum samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Veit nú ekki með salinn, en eldhúsliðið tók vel á því og nú þurfum við bara aðeins að fínstilla leiktaktíkina með þjálfaranum okkar Eiði Smára Glottandi

Talandi um Eið Smára, þá mætti auðvitað kappinn niður á Argentínu og lét sjá sig fyrir framan þjónana svona þannig að þeir vita að þetta er ekkert grín...og í leiðinni létu við hann árita bol sem Stebbi kokkur átti ;) hehe

En jámm, spennan er farin að magnast fyrir leikinn á sunnudaginn, enda er metnaðurinn hjá báðum liðum alveg einstaklega mikill. Við Bryndís og Nonni (gamla Greifa liðið að norðan) vorum einmitt að hlægja að því hvernig sambærilegu fótboltamóti væri tekið á gamla vinnustaðnum okkar....þar færu menn án efa á haugafyllerí og mundu láta sígarettur og bjórdósir ganga á milli sín heldur en nokkurn tímann fótboltann sjálfan, og æfingar kæmi náttúrlega ekki til greina!

Allavega...FRÁBÆRT hvað fólk hefur mikinn metnað í að gera þetta að skemmtilegum og kappsömum leik Hlæjandi

later,
Atli
Argentína

17. júní frí búiđ

21. júní 2006 klukkan 14:35
Nú er ég sjálfur ný kominn úr 4 daga 17. júní fríi og verð ég að segja að ég var kominn með nett fráhvarfseinkenni hérna síðustu dagana ;) Ég fór sem sagt norður til Akureyrar í eins árs stúdentsafmælið mitt og Helgu, daginn eftir fór ég svo í 150 manna brúðkaup norður í Fljótunum og á fjórða degi í sumarbústað í Borgarfirði! ...best að taka bara allan pakkann fyrst maður var byrjaður á þessu, er það ekki annars?

Allavega ný vinnutörn byrjaði svo á því að ég var sendur í litla sæta brúðkaupsveislu að dassa kampavíni og fylla á matarbakka, ágætt að byrja þetta svona í rólegheitunum. Svo frétti ég af svaka hasar inn á Argentínu hérna um helgina...úúúúúú ;) bara lögga á svæðinu og allar græjur! Skildist að einhverjir slagsmálahundar hefðu villst hingað inn og lent í deilum við aðra gesti útaf engu öðru en hávaða...hugsa sér!?!?! En allavega, þjónar Argentínu afgreiddu auðvitað málið af stökustu prýði og gef ég nú bara orðið yfir til þeirra, ef einhver vill bæta við þessa sögu.

Svo er fótboltamótið enn í fullum undirbúningi, æfingar fyrir hörkutól eru reglulega haldnar, í gær glitti smá í keppnisbikarinn og flestar treyjur ættu að fara að koma í hús....svaka spennó! :)

En þangað til næst,
fariðvelmeðykkur
Kv. Atli
Argentína

Starfsfólk ađ störfum

15. júní 2006 klukkan 18:26
Það er nú skemmst frá því að segja að ég kíkti niður á Argentínu um kvöldið og tók myndir af eitthvað af staffinu að sinna vinnunni sinni. Í salnum voru Jón Eggert og Vignir á vakt og Stebbi, Jói G og Gummi voru í eldhúsinu ásamt Susönnu. Láki mætti eldhress uppúr 10 og fékk sér nautalund og carpaccio Í EFTIRRÉTT!! eitthvað aðeins úti að aka kallinn ;) Við Vignir tókum líka smá rölt um vinnustaðinn og eldhúsið var lika myndað bak og fyrir...

Ég dúndraði síðan þessum myndum inn á síðuna og er m.a. hægt að skoða þær hér.

Ég hef þetta þá ekki lengra í bili...

Kv. Atli
Argentína

Fótboltamót Argentínu 25. - 26. júní !!!

09. júní 2006 klukkan 08:39
Nú hefur verið ákveðið að efna til fótboltamóts á Þingvöllum sunnudagskvöldið 25. júní. Það verður flautað til leiks á miðnætti og mun salurinn keppa á móti eldhúsinu. Við Vignir verðum í eldhúsliðinu, en þess má geta að Jón Eggert mætti inn í eldhús í kvöld og sagði við kokkana að þeir mættu fá okkur í liðið sitt, en salurinn mundi þrátt fyrir það RÚSTA keppninni Svalur Eftir það flugu yfirlýsingarnar inn og út um eldhúshurðina í allt kvöld og því stefnir í HÖRKU SLAG!

Planið er sem sagt þannig að þeir sem verða ekki á vakt sunnudaginn 25. júní keyra nokkrir saman á einkabílum til Þingvalla fljótlega eftir kvöldmat. Á tjaldstæðinu þar bíður okkar grill og hinn fínasti fótboltavöllur og þurfa menn að taka með sér allan þann mat og bjór sem þeir geta í sig látið. Restin af staffinu sem verður á vakt þetta kvöld koma síðan upphitaðir og ferskir fljótlega fyrir miðnætti á sínum bílum og þá byrjar ballið!!!

Fólk þarf einnig að verða sér úti um tjald og svefnpoka og ekki væri vitlaust ef einhverjir mundu deila með sér nokkurra manna tjöldum, en það má vera allur gangur á því...

Daginn eftir (sem sagt á mánudaginn) verður síðan keyrt í bæinn fljótlega eftir hádegi, en til þess að allt gangi upp þarf eldhúsið auðvitað að preppa mestan hluta mánudagsins á sunndeginum og það sama gildir nokkurn veginn um salinn.

En á fótboltamótinu sjálfu (sem er auðvitað haldið i tilefni af HM) er stefnt að því að hafa 5-6 manna lið með nokkrum varamönnum, en sá fjöldi fer auðvitað pínu eftir mætingu. Einnig er algjört möst að hvert lið verði í einhverskonar búningum, en eftir vaktina í kvöld var stungið upp á að vera í svuntum, kokkabúningum og meira að segja sundbolum Glottandi ...en auðvitað er bara málið að vera frumleg og finna eitthvað sniðugt og hentugt.

Mökum er að sjálfsögðu boðið með, en það er samt alveg bannað að læðast inn í tjald fyrir miðnætti Hissa

Annars er eldhús staffið mannað eftirfarandi stórstjörnum í fótbolta:
===============================
Ari
Atli
Gummi
Haffi
Hanna
Jói G
Stebbi
Vigdís
Vignir

Og salurinn með sitt risalið af fótboltaköppum:
===============================
Antonía
Áslaug
Bryndís
Helga
Hrefna
Jói "K"
Jón Eggert
Láki
Óli
Siggi
Silja
Svandís

Svo ef Þórdís hefur kost á að mæta fær hún að sjálfsögðu að styðja salinn (enda veitir ekki af Öskrandi hahaha), og það sama gildir um Rannveigu, Adda o.fl. ef þau vilja koma með. Að öllu óbreyttu mun sú regla gilda að makar keppa í sama liði, nema auðvitað þeir makar sem vinna saman Hlæjandi (eins og t.d. ég og Helga)

Kannski ágætt að auglýsa bara strax eftir myndbandsupptökuvél ef einhver í hópnum lummar á einni slíkri, en geimskipið mitt (myndavélin mín sem sagt) verður að sjálfsögðu á staðnum!

Svo vita allir og skilja að það þýðir ekkert að fara í einhver slagsmál á vellinum, enda verður þetta vonandi tekið upp og Kristján (sem er sjálfkjörinn dómari leiksins) fær svo að skoða öll brot daginn eftir og beita viðeigandi refsingum við þeim Glottandi (það er nú samt alveg í lagi að svona aðeins tuska fólk til, en samt innan marka, hehe...bíðiði bara)

Vona svo bara að sem flestir sjái sér fært að mæta, enda verður þetta GEGGJAÐ STUÐ og skemmtileg tilbreyting frá hversdagsvinnunni.

Ef það eru einhverjar spurningar er alveg upplagt að skjóta þeim fram hér á síðunni.
Skráningarlistar munu svo hanga á töflunni í eldhúsinu strax seinni partinn á morgun (sem sagt á föstudaginn), en einnig nægir að skrá sig með því að tilkynna sig hér á síðunni (svo bara merkjum við í skemmtinefndinni við þann aðila við fyrsta tækifæri).
Argentína

Jóli 1 böstađur!

05. júní 2006 klukkan 00:52
Jæja maður verður víst að standa sig í blogginu fyrst að hópbloggið er ekki tilbúið hjá bloggar.is

En það er nú helst í fréttum að ástkær starfsmaður okkar varð fyrir þeim hremmingum að verða stöðvar fyrir ölvunarakstur "morguninn eftir" Öskrandi Kall greyið hringir í yfirkokkinn rétt eftir hádegi í gær og tilkynnir smá seinkun þar sem hann var staddur á lögreglustöðinni á Selfossi... Nokkrir á vaktinni byrjuðu þegar í stað að semja brandara á borð við: "Nei...bara Eyþór mættur!", "takk fyrir vaktina...keyrðu varlega heim" o.s.frv., en þegar kom að því að skelþunnur og niðurbrotinn kallinn mætti á svæðið föttuðu flestir að þetta var ekki besti tíminn til að segja brandara...en það kemur að því Svalur

Annars stóð Argentína fyrir afar vel heppnaðri matargerð í brúðkaupsveislu í gær. Enginn annar en Ingvar fyrrverandi yfirkokkur var með í för og var mjög gaman að fá að heyra gömlu dóna-brandarana aftur (þó þeir hafa örugglega verið sagðir þúsund sinnum áður).

En svo er kannski ágætt að tilkynna að eftir nokkra daga verða hengdir upp listar inn í eldhúsi þar sem hver einasti starfsmaður getur fyllt út nokkrar upplýsingar um sjálfan sig sem verða síðan birtar hérna inn á síðunni.

En þá segi ég bara bless í bili...
Kv. Atli
Argentína

Fyrsta bloggfćrsla Argentínu steikhúss

31. maí 2006 klukkan 11:01
Þar sem þetta er formlega fyrsta bloggfærsla Argentínu steikhúss og hún skrifuð klukkan 20 mínútur í 6 um miðja nótt er kannski ekki auðvelt að hafa þetta eitthvað tilgerðarlegt og snjallt :/

en ég get allavega sagt frá því að hún Hrefna hreppti stóra bjórvinninginn í gestafjölda-lottóinu okkar fyrir ekki svo mörgum dögum síðan. Hún á því strangt til tekið að fá heilar 25 bjórkippur í verðlaun, en þar sem hún hefur ekki gott af því þá fær hún örugglega ekki alveg það mikið ;) hehe

í kvöld kom svo Láki upp á Argentínu eftir dagvakt niðri á Sólon...það væri nú ekki frásögufærandi, nema hvað hann fékk GRÍÐARLEGA stóra nautasteik eftir að hafa plammað sér niður á borð 1 eins og honum er einum lagið þegar hann er svangur. Hann virtist í fyrstu afar ánægður með þessa karlmannlegu steik sem hann fékk á borðið og bað fallega um að fá stóran steikarhníf og smá pipar með. En svo varð hann heldur betur fyrir vonbrigðum þegar hann komst að því að stóra nautasteikin hans var í raun og veru samanbrotið viskastykki bleytt upp úr soja sósu með dass af piparsósu yfir....kall greyið sem var svo svangur :)

en jæja, núna þurfa sumir að fara að sofa ef þeir ætla sér að mæta á réttum tíma á morgun...

Kveðja,
Atli jólasveinn
Argentína

Auglýsing

Könnun

Kemur ţú međ á fótboltamót Argentínu á Ţingvöllum 25. til 26. júní?